Um 40 manna hópi af erlendu ferðafólki hefur verið safnað saman í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Ferðaþjónustan Saga Travel ætlaði með ferðamennina austur að Dettifossi og Mývatni í dag en aflýsa varð ferðinni þar sem Víkurskarðið er ófært. Þar situr stór flutningabíll á austurleið fastur á miðjum vegi í stórhríð. Ekki er útlit fyrir að Víkurskarðið verði fært fyrr en veðrið lagast. Í staðinn verður ferðafólkinu boðið upp á kynnisferð um Eyjafjörð að smakka mat úr héraði, þar sem meðal annars verður staldrað við hjá Kaffi kú í Eyjafjarðarsveit, Ektafiski á Hauganesi og Bruggsmiðjunni á Árskógssandi.