Flest gistirými á Akureyri og nágrenni eru vel bókuð og það stefnir í að fjöldi fólks leggi leið sína til Akureyrar um páskana. Ég á von á því að gestirnir verði talsvert fleiri en í fyrra, segir Arnheiður Jóhannsdóttirframkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.
Arnheiður segir að greina megi mikla aukningu í komu erlendra ferðamanna um páskana. Frá áramótum hefur verið stöðugur straumur erlends ferðafólks norður. Ferðamannatímabilið yfir vetrartímann hefur verið að lengjast og teygir sig inn í páskana. Síðustu dagana hefur verið aðeins rólegra, sem er líklega lognið á undan storminum.