Fer Íslandsmeistaratitill á loft?

Þór/KA getur orðið Íslandsmeistari í kvöld. Mynd: Sævar Geir.
Þór/KA getur orðið Íslandsmeistari í kvöld. Mynd: Sævar Geir.

Söguleg stund getur átt sér stað á Þórsvelli í kvöld þegar Þór/KA tekur á móti Selfossi í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu en heil umferð fer þá fram í deildinni. Þór/KA er í toppsæti deildarinnar með fjögurra stiga forystu á Stjörnuna þegar tvær umferðir eru eftir. Vinni Þór/KA í kvöld fer Íslandsmeistaratitillinn á loft en það yrði fyrsti bikarinn í sögu félagsins. Leikurinn á Þórsvelli hefst kl. 18:00 og er frítt á völlinn.

Nýjast