Féll af bifhjóli og slasaðist

Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.

Ökumaður bifhjóls slasaðist er hann féll af hjóli sínu á Akureyri í gærkvöld og var fluttur á slysadeild með eymsli í baki og hnakka. Ökumaðurinn var með hjálm og vel klæddur hjólafatnaði. Hjólið er mikið skemmt. Þá var einnig ekið á lamb á veginum við Svalbarðsströnd í Eyjafirði í gærkvöld og drapst það samstundis. Ökumanni bílsins tókst að halda bílnum á veginum en talsvert högg kom á bílinn.

throstur@vikudagur.is

Nýjast