Tólf nemendur stunda í vetur nám í rafeindavirkjun við Verkmenntaskólann á Akureyri, en slíkt nám hefur ekki verið í boði um árabil fyrir norðan fyrr en í vetur. Eyjólfur Ólafsson formaður Félags rafeindavirkja segir að staðan hafi einfaldlega verið sú að VMA hafi þurft að leita leiða til að fjármagna ýmis tækjakaup í tengslum við námið.
Eitt af markmiðum félagsins er að styðja við bakið á menntun í greininni og við ákváðum því að færa skólanum þrjár milljónir króna til tækjakaupa. Það er mjög mikilvægt að slíkt nám sé í boði hérna fyrir norðan og félagið vildi með þessari gjöf sýna slíkt í verki. Það gengur auðvitað ekki að rafeindavirkjun sé aðeins kennd á höfuðborgarsvæðinu, enda eru rafeindavirkjar starfandi um land allt.
Ekkert nám án styrksins
Sigríður Huld Jónsdóttir aðstoðarskólameistari VMA segir að án styrks Félags rafeindavirkja hefði líklega ekki verið hægt að bjóða upp á nám í rafeindavirkjun, nemendurnir hefðu þurft að fara suður til náms. Hún segir að mikil eftirspurn sé eftir rafeindavirkjum í landinu, auk þess sem slíkt nám opni margar dyr til áframhaldandi menntunar. Því sé það fagnaðarenni að VMA bjóði nú upp á nám í rafeindavirkjun.
karleskil@vikudagur.is