Febrúar sá þriðji hlýjasti frá upphafi á Akureyri

Mánuðurinn var sérlega hlýr á landinu öllu, annar til fjórði hlýjasti febrúar frá upphafi mælinga á 19. öld.

Í Reykjavík mældist meðalhitinn 3,9 stig, 3,5 stigum ofan meðallags og hefur aðeins tvisvar orðið hærri. Á Akureyri var meðalhitinn 2,4 stig, 3,9 stigum ofan við meðallag. Á Akureyri hefur aðeins þrisvar orðið hlýrra í febrúar, 1932, 1956 og 1965. Lægsti hiti á mannaðri veðurstöð mældist -14,6 stig á Torfum í Eyjafirði þann 1. febrúar.

Á Akureyri mældist úrkoman 30,4 mm sem er um 30% undir meðallagi. Sólskinsstundirnar voru 43,2, nærri 10 stundum umfram meðallag. Alhvítir dagar voru 14 í mánuðinum og er það 7 dögum undir meðallagi.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast