Samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands voru seld 120 einbýlishús á Akureyri á síðstu tólf mánuðum, þ.e.a.s. frá byrjun apríl í fyrra til loka mars á þessu ári. Nafnverð á seldan fermetra var samkvæmt skráðum samningum 190.146 krónur, en á sama tímabili árinu á undan var meðalverðið 182.440 krónur, en í fyrra var verðið 183.745 krónur.
Þetta þýðir að verð á einbýlishúsum hefur hækkað á einu ári um 3,5%. Verðbólgan síðustu tólf mánuðina er 3% og vísitala byggingarkostnaðar hefur hækkað um 3,3%. Það má því segja að verð á einbýlishúsum á Akureyri hafi rétt náð að halda í við verðbólgu, þá er eftir að taka tillit til fjármagnskostnaðar.
Fjölbýli
Meðalverðið var 189.484 krónur á seldan fermetra frá byrjun apríl í fyrra til loka mars á þessu ári. Á sama tímabili á undan var verðið hins vegar 179.003 krónur. Íbúðir í fjölbýli hafa því hækkað um nærri 6% á tímabilinu. Samkvæmt þessum tölum hafa íbúðir í fjölbýli haldið verðgildi sínu, þegar ekki er tekið tillit til fjármagnskostnaðar.
Nánar um fasteignaverð í prentútgáfu Vikudags
karleskil@vikudagur.is