Fasteignamarkaðurinn á Akureyri: Verð á einbýlishúsum stendur í stað

Frá Akureyri
Frá Akureyri

Samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands voru seld rúmlega 90 einbýlishús á Akureyri fyrstu tíu mánuði ársins, sem er svipaður fjöldi og á sama tíma í fyrra. Á þessu ári er meðalverðið á seldan fermetra 182.440 krónur, en í fyrra var verðið 180.771. Hækkunin er sáralítil, eða nálægt einu prósentustigi. Byggingarvísitala hefur hækkað um 3,2 % á síðustu 12 mánuðum, þannig að raunvirði einbýlishúsa á Akureyri hafur í raun lækkað, sé miðað við skráða kaupsamninga.

Íbúðir í fjölbýli hafa hins vegar hækkað nokkuð umfram þróun vísitölunnar á tímabilinu.

Fyrstu tíu mánuði ársins voru seldar 145 íbúðir á Akureyri í fjölbýli, en á sama tíma í fyrra voru aðeins seldar 92 íbúðir. Fasteignamarkaðurinn með íbúðir í fjölbýli er með öðrum orðum að braggast.

Fermetraverðið á þessu ári er að jafnaði 190.230 krónur, en í fyrra var meðalverðið í fjölbýli 173.084 krónur. Hækkunin er því nærri 10 %, vísitala byggingarkostnaðar hefur hækkað á árinu eins og fyrr segir um 3,2%. Aldur íbúðanna er svipaður á milli ára og sömuleiðis flatarmál íbúða.

Samkvæmt þessum tölum hafa íbúðir í fjölbýli haldið verðgildi sínu, miðað við verðbólgu og vel það. Dæmið snýst við þegar verð á einbýlishúsum er borið saman á milli ára.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast