Veltan á fasteignamarkaðnum á Akureyri á fyrri helmingi ársins var 5,2 milljarðar króna, samkvæmt þinglýstum kaupsamningum á tímabilinu. Á sama tíma í fyrra var veltan 5,6 milljarðar, þannig að samdrátturinn er nokkur. Í ár var þinglýst 227 kaupsamningum og á sama tímabili í fyrra var fjöldinn 236, þannig að fjöldinn er svipaður, þótt veltan hafi dregist saman.
Þegar litið er á einstök uppgjörstímabil, kemur í ljós að litlar sviptingar hafa verið á markaðnum á árinu, veltan hefur verið nokkuð stöðug.