Um 6% samdráttur er í fjölda farþega innanlandsflugs fyrstu mánuði ársins að sögn Ara Fossdal, stöðvarstjóra Flugfélags Íslands á Akureyrarflugvelli. Íslenskum farþegum fer fækkandi en hins vegar má greina aukningu á meðal erlendra gesta að sögn Ara. Það er ljósi punkturinn í þessu, segir hann. Ari segir vel hafi gengið að bóka í flug um páskana en eftir það taki við tímabil mikillar óvissu. Skattaálögur á flugið mun aukast þann 1. apríl og við vitum ekkert hvernig næstu mánuðir verða. Við leyfum okkur samt að vera bjartsýn.
Borga brúsann
Samkeppnin hefur aukist í almenningssamgöngum undanfarin ár og segir Ari að hún sé ekki alltaf á jafnréttisgrundvelli. Ríkið niðurgreiðir akstur Strætós en á sama tíma hækka skattaálögur á flugið. Við erum því í raun og veru að borga brúsann fyrir Strætó. En við erum hins vegar hvergi bangin og fögnum allri samkeppni, segir Ari.