Fagnað á kosningavökum á Akureyri

Framsóknarfólk fagnar fyrstu tölum /myndir karl Eskil
Framsóknarfólk fagnar fyrstu tölum /myndir karl Eskil

Stuðningsfólk Framsóknarflokksins á Akureyri fylgdist með fyrstu tölum úr Norðausturkjördæmi í félagsheimilinu Lóni. Samkvæmt fyrstu tölum fær flokkurinn fjóra þingmenn og bætir við sig tveimur þingmönnum. Þegar þetta var ljóst var klappað og skálað, enda ljóst að flokkurinn hefur aukið mikið við fylgi sitt.

Á kosningavöku Bjartrar framtíðar í Hafnarstræti var líka fagnað innilega, því hreyfingin er með einn þingmann, Brynhildi Pétursdóttur.

Atkvæði eru talin í Brekkuskóla.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast