Eflaust ruglar það fólk í ríminu að ég er ekki með prófíl mynd af sjálfum mér heldur fugli. Margir aðdáendur söngkeppninnar halda því að ég sé hinn eini sanni söngvari, segir Eyþór Ingi Jónsson organisti á Akureyri. Vinabeiðnir hafa hrannast upp á Facebook síðunni hans þar sem fólk ruglar honum saman við Eyþór Inga Gunnlaugsson, júróvisionfara okkar Íslendinga.
Þetta eru aðallega Suður-Amerískir karlmenn og Austur-Evrópskar konur. Aðspurður segist hann taka þessu með jafnaðargeði. Mér finnst þetta bara fyndið og ég er ekkert að fara breyta um prófíl mynd þrátt fyrir þennan rugling, segir Eyþór og hlær. Hann segir þetta ekki í fyrsta sinn sem þeim nöfnum sé ruglað saman.
Nánar er rætt við Eyþór Inga í prentútgáfu Vikudags í dag.
throstur@vikudagur.is