Fæðingum fækkar

Fæðingum á Sjúkrahúsinu á Akureyri hefur fækkað um tæplega 20 prósent það sem af er ári miðað við sama tíma í fyrra.

Þá hefur sjúklingum fækkað um sex prósent og aðgerðum um fimm prósent.

Hins vegar er áframhaldandi fjölgun í komum á slysa- og bráðamóttöku eða ellefu prósent og þá er þrettán prósent aukningi í sjúkraflugi. Þetta kemur fram á heimasíðu FSA.

throstur@vikudagur.is

Nýjast