Ég hef verið með bíladellu frá því ég man eftir mér. Áhuginn er meðfæddur og ég minnist þess að hafa sett keðju á þríhjólið mitt sem lítill gutti, segir Einar Gunnlaugsson formaður Bílaklúbbs Akureyrar. Einar tók við sem formaður félagsins í vetur en hann hefur verið viðriðinn klúbbinn í hart nær 30 ár.
Ég keppti fyrst í torfærukeppni árið 1986 og nær sleitulaust frá árinu 1992 fram yfir aldamót. Ég tók nánast þátt í öllum keppnum á þessum árum og tókst að vinna nokkra Íslandsmeistaratitla.
-Þannig að þú ert margfaldur Íslandsmeistari?
Já, það má kannski segja það. Ég sigraði m.a. í torfæru og sandspyrnu á þessum árum, segir Einar hógvær.
-Bíladagar fara fram um helgina og því væntanlega í mörg horn að líta hjá klúbbnum?
Já vissulega, það er búið að vera brjálað að gera undanfarnar vikur enda krefst svona hátíð mikils undirbúnings. Þetta er miklu meira en bara bílasýningin og götuspyrnan.
Ítarlegt viðtal er við Einar í prentútgáfu Vikudags