Fjölskylduleikritið Eyrnalangir og annað fólk eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur hefur verið sýnt við miklar vinsældir hjá Leikfélagi Dalvíkur síðustu vikur.
Stefnir í metaðsókn flestar sýningar uppseldar en þeim fer fækkandi þar sem húsið er að fara í gagngera endurnýjun. Tónlistin er eftir Ragnhildi Gísladóttur og leikstjóri er Saga Jónsdóttir. Sýningin hefur fengið frábæra dóma gagnrýnenda og áhorfenda og Eyrnalangafjölskyldan hefur vakið mikinn áhuga hjá unga fólkinu.
Leikarar á mynd f.v. Patrekur Óli Gústafsson, Aron Óskarsson, Hugrún Lind Bjarnardóttir og Kristín Svava Stefánsdóttir