Eyfirski safnadagurinn á laugardaginn

18 söfn og sýningar við Eyjafjörð opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi á laugardaginn, frá klukkan 13-17. Tilefnið er Eyfirski safnadagurinn sem nú er haldinn í sjöunda sinn.  Markmið safnadagsins er að vekja athygli á fróðlegum og forvitnilegum söfnum við fjörðinn og því öfluga safnastarfi sem þar er unnið. Safnadagurinn er að þessu sinni tileinkaður sögulegu fólki sem sett hefur svip sinn á samfélagið. 

Söfninopna auk þess samsýninguna „Komið - skoðið"  í menningarhúsinu Hofi á Akureyri þennan sama dag. Þar sýnir hvert safn forvitnilegan grip úr safnkosti sínum sem auk þess er einkennandi fyrir það. Tilgangurinn er sýna gestum og gangandi fjölbreytileika safnanna á forvitnilegan hátt.

Nýjast