"Erum orðnir mjög spenntir"

Knattspyrnulið Þórs í karlaflokki sækir tékkneska úrvalsdeildarliðið FC Mlada Boleslav heim í kvöld en þetta er fyrri leikur liðanna í annarri umferð Evrópudeildar UEFA. Það er ljóst að við ramman reip verður að draga fyrir norðanmenn sem mæta töluvert betri andstæðingi í kvöld en í fyrri umferðinni, en þar sló Þór írska liðið Bohemians úr leik eftir 5-1 sigur á heimavelli í seinni leiknum.

Vikudagur heyrði hljóðið í Hreini Hringssyni aðstoðarþjálfara Þórs sem var á leiðinni í kaffi og svo beint í rútu á völlinn þegar blaðamaður náði tali af honum. "Við erum orðnir mjög spenntir og þetta leggst bara vel í okkur. Aðstæður hérna úti til knattspyrnuiðkunnar eru vægast sagt góðar og allt mun flottara en í síðustu umferð." Hann segir töluverðan hita vera úti þessa stundina. "En leikurinn er ekki fyrr en sjö í kvöld að staðartíma þannig að ég vona að það verði aðeins farið að kólna þá," segir hann.

Um markmiðið í kvöld segir Hreinn. "Við þreifum okkur áfram og sjáum hvernig þeir eru mótherjarnir. Við þekkjum ekki mikið til liðsins og því mikilvægt að stíga varlega til jarðar í kvöld til að eiga möguleika í seinni leiknum eftir viku," segir Hreinn.

Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og verður hægt að horfa á leikinn á eftirfarandi slóð: http://www.thefirstrow.eu/watch/131251/1/watch-mlada-boleslav-vs-thor.html

Nýjast