Erfitt getur reynst fyrir iðnnema að komast á samning hjá fyrirtækjum og eru mörg dæmi um að nemendur flosni upp úr námi vegna þessa. Þetta hefur verið raunin í byggingagreinunum hérna á Norðurlandi, fyrir utan múrarastéttina. Ég sá nýverið auglýst eftir nema í húsasmíði og það hefur ekki gerst í einhver ár, segir Heimir Kristinsson varaformaður Byggiðn. Hann segir ástandið slæmt og að töluvert fleiri nemar bíði eftir samningi í dag en árin fyrir hrun. Þetta getur háð ýmsum faggreinum í að endurnýja lærða starfsmenn. Það er eitt af þeim vandamálunum sem byggingariðnaðurinn glímir við í dag, segir Heimir. Í sama streng tekur Hildur Salína Ævarsdóttir kennari við hársnyrtideild VMA. Þetta er viðvarandi vandamál og bagalegt fyrir nemendur. Margir geta ekki lokið námi, þar sem þeir komast ekki á samning. Skólar og atvinnulíf verða að vinna betur saman að varanlegri lausn, segir Hildur.