Er sjoppan opin?

Ég ólst upp við það að sjoppan var út á horni og þar hafði ég aðgengi allan daginn að fíneríinu, bara ef ég vildi, Slysó var rétt hjá og sjúkrabílarnir brunuð framhjá oft á dag. Skólinn var í göngufæri og stutt niður í bæ, þar sem einhvernvegin allt var, fannst mér þá.

Þetta var í Reykjavík og þar var gott að búa, nú bý ég í sveit á Vopnafirði þar sem langt er í sjoppuna og ýmislegt annað en þar er líka gott að búa. Reyndar er betra að vera frískur, frekar ungur og kannski ekki of áfjáður í að vinna mikið á netinu. Svo má maður kannski ekki búast við því að alltaf sé fært út úr byggðarlaginu.

En þetta með færðina er sosum í lagi ef grunnþjónustan í samfélaginu er trygg. Þá meina ég að aðgengi að heilsugæslu, læknisþjónustu, löggæslu,  menntun og félagsþjónustu sé ásættanlegt. Því miður er sú ekki raunin alls staðar.

Um allt land býr gott fólk sem leggur sitt af mörkum til samfélagsins, vill staðnum sínum vel og vonar að börnin fái að vaxa úr grasi hraust og heilbrigð við sömu tækifæri og öll önnur börn landsins.

Styrkjum grunninn

En því miður er nú svo komið að öryggisnetið sem á halda utan um okkur öll er orðið ansi gloppótt og víða trosnað svo að erfitt verður að stoppa í götin. Gengið hefur verið hart fram í niðurskurði á allri þjónustu. Í kjölfar hruns var niðurskurður og aðhald nauðsynlegt en nú er svo komið að alvarlegt ástand blasið við ef ekki verður spyrnt við fótum. Barátta sveitarstjórnarmanna hefur verið í vörninni um grunnþjónustuna. Of margir íbúar landsins búa við verulega skerta þjónustu, sem þeir eiga þó fullan rétt á að njóta. Því þegar allt kemur til alls erum við sem veljum að búa út á landi ekki að kalla eftir óraunhæfri þjónustu eða flottræfilshætti. Við viljum búa börnunum okkar öruggt umhverfi sem byggir á traustum grunnstoðum, við viljum t.d. samfellu í heilbrigðisþjónustu fyrir alla aldurshópa. Nú þarf að forgangsraða og tryggja að öryggisnetið haldi utan um þá sem þess þarfnast.  Því ef ekki kemur til þess að aðstöðumunur íbúa landsins verði jafnaður í grunnþáttum eins og t.d. húshitun, samgöngum, fjarskiptum, heilbrigðis- og menntamálum skerðast lífsgæði svo að ekki verður við unað. Nú skulum við sameinast um að styrkja grunninn sem við byggjum á til framtíðar í landinu okkar sem er fullt af tækifærum.

Við skulum ekki loka sjoppunni.

Þórunn Egilsdóttir skipar 4. sæti á framboðslista Framóknarflokksins  í Norðausturkjördæmi.

 

Nýjast