Enn fjölgar gistinóttum á norðlenskum hótelum

Gistinætur á norðlenskum hótelum voru samtals 3.800 í janúar og fjölgaði um 58% miðað við sama mánuð í fyrra.

Á landinu öllu voru gistinæturnar 90.300 og fjölgaði þeim um fjórðung frá janúar í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru um 83% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 28% frá sama tíma í fyrra.

Nýjast