Enginn virginall

Til stóð að taka virginall--hjóðfærið, sem keypt hefur verið til landsins, úr umbúðunum á Akureyri í morgun. Virginall er lítið hljófæri af sembalfjölskyldunni, sem á sér engan líka á Íslandi. Flutningafyrirtækið Landflutningar ætlaði að flytja hljófærið til Akureyrar, en einhverra hluta vegna er það enn í Reykjavík. Hljóðfærið nýja verður vígt í Hóladómkirkju annað kvöld, en það er menningarfélagið Barokksmiðja Hólastiftis sem stendur að þessum hljóðfærakaupum.  Hápunktur hvers árs í starfi Barokksmiðjunnar er Barokkhátíðin á Hólum sem haldin er síðustu helgina í júní ár hvert. Hátíðin í ár hefst á fimmtudag og þar kennir ýmissa grasa. Þátttakendur eru nú frá Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð, Hvíta-Rússlandi, Úkraínu og Hollandi þannig að hátíðin er alþjóðleg.

Nýjast