Ekkert barn fæddist á Sjúkrahúsinu á Akureyri þann 12.12.2012 síðastliðinn. Óvenju rólegt hefur verið á fæðingardeildinni undanfarna daga að sögn Ingibjargar Hönnu Jónsdóttur yfirljósmóður. Við erum afar svekkt að ekkert barn hafi fæðst hjá okkur þennan dag. Það er hins vegar von á nokkrum fæðingum í kringum jólin, þannig að við fáum vonandi einhver jólabörn í staðinn, segir Ingibjörg.
Það stefnir í að fæðingar á árinu verði í kringum 490 á Akureyri, sem er vel yfir meðalári. Í fyrra var metár en þá fæddust 515 börn á sjúkrahúsinu.
throstur@vikudagur.is