Endurgert húsnæði formlega tekið í notkun

Endurgert húsnæðis stofnana innanríkisráðuneytisins að Hafnarstræti 107 á Akureyri var formlega opnað í vikunni. Þar eru til húsa Sýslumaðurinn á Akureyri, Héraðsdómur Norðurlands eystra og nú síðast skrifstofa Þjóðskrár Íslands á Akureyri.

Húsið hefur verið endurnýjað í hólf og gólf að frátalinni þeirri hæð hússins sem hýsir dómstólinn en sá hluti hefur áður verið endurnýjaður. Hjá sýslumanni á Akureyri starfa kringum 20 manns að meðtöldum starfsmanni í útibúi á Dalvík. Sex starfa hjá Héraðsdómi norðurlands eystra. Hjá útibúi Þjóðskrár Íslands eru 15 starfsmenn en þeim hefur fjölgað með auknum verkefnum útibúsins síðustu árin. Verktakafyrirtækið Tréverk á Dalvík sá um endurbæturnar.

 

 

 

Nýjast