Embætti yfirdýralæknis:Ólafur Jónsson meðal umsækjenda

Ólafur Jónsson
Ólafur Jónsson

Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir Norðausturumdæmis er meðal fimm umsækjenda um stöðu embættis yfirdýralæknis, en Halldór Runólfsson lætur af því embætti um áramótin. Ólafur er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.

Umsækjendur eru:

Gunnar Þorkelsson, héraðsdýralæknir Suðurumdæmis.
Kjartan Hreinsson sérgreinadýralæknir heilbrigðiseftirlits hjá Matvælastofnun .
Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir Norðausturumdæmis.
Sigurborg Daðadóttir forstöðumaður áhættumats- og gæðastjórnunarsviðs Matvælastofnunar.
Þorvaldur H. Þórðarson framkvæmdastjóri skrifstofu inn- og útflutningsmála hjá Matvælastofnun.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast