Ellefu í framboði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Framboðsfrestur í prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor, rann út í gær. Alls bárust 11 tilkynningar um framboð.

Frambjóðendur eru eftirtaldir í stafrófsröð:

Ármann Sigurðsson, sjómaður
Baldvin Valdemarsson, verkefnastjóri
Bergþóra Þórhallsdóttir, aðstoðarskólastjóri
Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri
Eva Hrund Einarsdóttir, starfsmannastjóri
Gunnar Gíslason, fræðslustjóri
Hjörtur Narfason, framkvæmdastjóri
Kristinn F. Árnason, sjálfstæður atvinnurekandi
Njáll Trausti Friðbertsson, flugumferðarstjóri
Sigurjón Jóhannesson, verkfræðingur
Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir, laganemi


Prófkjörið fer fram laugardaginn 8. febrúar nk

Nýjast