Éljagangur í dag og frost

Veturinn kveður Norðurland eystra með éljagangi. Samkvæmt veðurspánni verður norðan 5-10 m/sek í dag og frost á bilinu 0-5 stig.

Norðaustanlands er snjóþekja eða hálkublettir nokkuð víða þó er hálka og smá éljagangur á Víkurskarði og flestum leiðum í kringum Akureyri.

Meðfylgjandi mynd var tekin á Eyrinni á Akureyri í morgun.

 

karleskil@viudagur.is

Nýjast