Vetrar- og útivistarhátíðin Éljagangur fer fram á Akureyri dagana 14.-17. febrúar en að hátíðinni standa Hlíðarfjall, Skíðarfélag Akureyrar, Vetraríþróttamiðstöð Íslands, EY-LÍV félag vélsleðamanna í Eyjafirði og fleiri.
Stútfull dagskrá fyrir unga sem aldna verður í boði og það eina sem þarf að gera er að hafa unun af hverskonar útivist, snjó og rauðum eplakinnum. Það er snjókarlinn Frosti sem tekur á móti gestum Éljagangs en hann er þessa stundina að koma sér fyrir á Ráðhústorgi, bústinn og sællegur.
Í kjölfarið rekur hver viðburðurinn annan s.s. DC Brettakeppni og Session í miðbænum og í Hlíðarfjalli, sleðaspyrna í Hlíðarfjalli, Ískrossmót á Leirutjörn, Vasaljósaganga í Hlíðarfjalli, snjóflóðaflóðanámskeið, klifurveggur björgunarsveitarinnar Súlna, snjóþrúguganga á Súlumýrum, hundasleðakynning að Hömrum, vélsleðaferðir, undirbúningsnámskeið í Hlíðarfjalli fyrir keppnina Hraðasti maður Íslands, íshótelið IGLOO, þyrluútsýnisflug og þyrsluskíðamennska í Hlíðarfjalli, Kósýkvöld í Sundlaug Akureyrar með slökunartónlist, nuddi og huggulegheitum, Bautatölt í Skautahöllinni, Tækjadelluball í Sjallanum og tónleikar í Hofi og á Græna hattinum.