Bæjarfulltrúi Jóhannes G. Bjarnason óskaði bókað: "Ég tel tillögur vinnuhópsins óraunhæfar og ekki nothæfan grunn
á framtíðarnotkun svæðisins. Þjónustuhúsnæði sem fyrirhugað er á miðbæjarsvæðinu er úr öllum
takti við væntanlega þörf á slíkum byggingum og nauðsynlegt er að endurskoða frá grunni allt skipulag
miðbæjarsvæðisins."
Baldvin H. Sigurðsson óskaði bókað. "Ég vara við þeirri tilhneigingu að byggja íbúðarblokkir meðfram helstu
umferðaræð bæjarins sem einnig er hluti af þjóðvegi 1, einnig óttast ég að fyrirhugaðar byggingar hefti um of útsýni
að Brekkunni og fjallahringnum þar fyrir ofan."