Atkvæðagreiðslu um dagskrártillögu Kristjáns Þórs Júlíussonar og Tryggva Þórs Herbertssonar þingmanna Sjálfstæðisflokksins um að setja á dagskrá næsta fundar Alþingis mál sem tengjast kísilveri í landi Bakka við Húsavík og uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka var frestað í gærkvöld. Þignforseti sleit þingfundi seint í gærkvöld og voru þá ekki nógu margir þingmenn í þingsalnum til að greiða atkvæði.
Samkvæmt dagskrá þingsins í dag eru þessi mál númer 26 og 27, en alls eru 50 mál á dagskrá.