Sumir fá sér háþrýstisprautu og hreinlega úða olíunni á viðinn, ætla sér sjálfsagt að spara tíma. Ég veit um pall sem var tíu sólarhringa að þorna eftir að olíu var úðað á hann með slíku tæki. Það verður að draga vel úr olíunni, annars er hætta á að pallurinn flagni. Ég svo sem veit ekki hver eru algengustu mistökin, en það eru ansi margir sem bera olíuna ekki jafnt á alla fletina. Til að fyrirbyggja mistök er besta ráðið að fylgjast vel með viðnum og koma í veg fyrir að hann skemmist ekki, segir Þórir Magnússon málarameistari á Akureyri
Undirbúningurinn skiptir miklu máli í þessum efnum, það er ekki ráðlegt að bera á pallinn eða húsið án þess að undirbúa verkið vandlega áður. Í fyrsta lagi þarf yfirboðið að vera hreintog þurrt, rakastigið þarf að vera undir 18 prósentum og svo þarf veðrið auðvitað að vera hagstætt. Rigning skömmu eftir verklok er ekki góð. Talandi um rigningu, ef perlar á pallinn þegar fer að rigna er það góðs viti, en ef viðurinn drekkur í sig vatnið, þarf að bera á hann.
karleskil@vikudagur.is