Það kann að vera barnsleg bjartsýni að halda að hægt sé að breyta íslenskum stjórnmálum. Sumum kann jafnvel að þykja þetta markmið Bjartrar framtíðar lítilfjörlegt aukaatriði. Það finnst mér ekki. Þingmenn geta nefnilega verið uppfullir af góðum vilja og sammála í grunninn. En ef allt logar í illdeilum á Alþingi og fólk vill ekki vinna saman verður árangurinn lítill.
Virðing ekki bara í orði
Við í Bjartri framtíð trúum því að hægt sé að breyta stjórnmálum til hins betra með því að stunda stjórnmál af ábyrgð. Í því felst að virða skoðanir annarra, stunda ekki málþóf, deila ekki leiðindum og tala ekki niður til annarra þingmanna eða stjórnmálaflokka eða uppnefna þá. Allt þetta flokkast sem almenn kurteisi og við viðhöfum hana á hverjum degi. Ég sé ekki af hverju stjórnmálin ættu að vera undanskilin.
Neytendamálin mikilvæg
Það er þó ekki bara von um nýja og betri stjórnmálamenning sem rekur mig áfram. Ég hef áhuga á þjóðfélaginu í stóru og smáu. Sérstakan áhuga hef ég þó á málefnum neytenda og finnst þessi málaflokkur hafa fengið lítið vægi í gegnum tíðina. Neytendur eiga rétt á öruggri vöru og þeir eiga rétt á öllum upplýsingum sem skipta máli. Þetta hljómar ekki flókið en er það nú samt. Varasöm efni eru notuð í neysluvörur, verðmerkingum er ábótavant, ólöglegir lánasamningar hafa viðgengist, uppruni vara er á reiki og matvæli eru ekki nógu vel merkt. Gott dæmi eru merkingar á salti eða skortur á þeim öllu heldur. Okkur er sagt að borða minna salt en á sama tíma er ekki skylt að merkja salt á umbúðir nema í undantekningartilfellum. Hverra hagsmuna er eiginlega verið að gæta?
Jeg hefi talað við menn af öllum flokkum
Ég var svo heppin að starfa sem safnvörður í Nonnahúsi um tíma og kynntist þá vel sögu okkar merka rithöfundar Jóns Sveinssonar, Nonna. Árið 1930 kom Nonni til Íslands í boði stjórnvalda og hitti við það tækifæri Valtý Stefánsson ritstjóra. Í grein sem birtist eftir andlát Nonna Valtýr í samtalið og kveðjuorð Nonna sem voru þessi:
Líði ykkur öllum vel. Hættið að rífast, eins og þið gerið. Jeg hefi talað við menn af öllum flokkum. Þið eruð ekki eins ósammála eins og þið haldið. Í rauninni viljið þið allir það sama. Hag og velferð fósturjarðarinnar.
Ég ætla að gera þessi orð að mínum. Hættum að rífast.
Brynhildur Pétursdóttir skipar 1. sæti á framboðslista Bjartrar framtíðar í Norðausturkjördæmi.