Veðurstofan gerir ráð fyrir 15-23 m/s og snjókomu á Norðurlandi eystra, sérstaklega á annesjum. Draga á úr vindi í kvöld og nótt. Á morgun verður norðaustlæg átt 10 18 m/s og frost á bilinu 2-10 stig.
Á Norðurlandi vestra er ófært á Þverárfjalli, Vatnsskarði og Siglufjarðarvegi. Þæfingur er annars víða eða hálka ásamt stórhríð eða skafrenning.
Norðaustanlands er ófært um Ólafsfjarðarmúla, Víkurskarð og á Grenivíkurvegi. Hálka eða snjóþekja er á öðrum leiðum og víða er stórhríð.