Einstakur árangur UFA

Meðlimir í Ungmennafélagi Akureyrar náðu einstaklega góðum árangri á sl. keppnisári. Þeir Gísli Sigurðsson þjálfari meistaraflokks og Unnar Vilhjálmsson þjálfari yngri flokkana hafa unnið mikið uppbyggingarstarf innan félagsins sem er að skila sér í að einstaklingar innan hópsins eru komnir í landsliðshóp og Ólympíuhóp Frjálsíþróttasambands Íslands.

Þjálfararnir voru báðir heiðraðir í lokahófi FRÍ í október og fengu viðurkenningu frá IAAF (Alþjóða frjálsíþróttasambandinu) fyrir þeirra framlag til íþróttarinnar.

 

Sex einstaklingar úr UFA eru í landsliðshópi FRÍ og tveir í Ólympíuhópnum fyrir leikana árið 2016, en í þeim hópi eru fjórar konur og sjö karlar.

 

Rannveig Oddsdóttir er götuhlaupari ársins í kvennaflokki og fékk viðurkenning í lokahófi FRÍ. Hún er 39 ára og náði sínum besta árangri í 10 km hlaupi (37:11) og maraþoni í sumar. Hún hljóp sig inn í Ólympíuhóp FRÍ með glæsilegum árangri í maraþoninu er hún náði öðrum besta tíma Íslendings frá upphafi á tímanum 2:52:3 mín. Hún er einnig í landsliðshóp FRÍ.

 

Hafdís Sigurðardóttir sigraði í öllum hlaupum sem hún tók þátt í á Íslandi í sumar og er í efsta sæti á afrekaskrá sumarins í 100 m (11,93), 200 m (24,00) og 400 m (54,16) hlaupum. Hún bætti sinn persónulega árangur í öllum hlaupunum og fékk verðlaun fyrir besta spretthlaupsafrekið í lokahófi FRÍ.  Með þessum árangri er hún ein fjögurra kvenna í Ólympíuhópi FRÍ og er einnig í landsliðshópnum.

 

Þorbergur Ingi Jónsson er í landsliðsúrvali FRÍ. Hann hefur verið landsliðsmaður undanfarin fimm ár í millivegalengdum og langhlaupum. Síðustu ár hefur hann einbeitt sér að lengri götuhlaupum og utanvegahlaupum og er næstur á eftir Kára Steini Karlssyni Ólympíufara í 10 km(32,11), hálfu (1:09,23) og heilu maraþoni (2:26,00). Þess má geta að Þorbergi vantar eina mínútu í bætingu í maraþoninu til að komast í Ólympíuhópinn.

 

Kolbeinn Höður Gunnarsson er 17 ára og efnilegasti spretthlaupari landsins. Þrátt fyrir ungan aldur er hann í öðru sæti á afrekaskrá sumarins í karlaflokki í 100 m (11,05), 200 m (21,94) og 400 m (48,99) hlaupum. Hann setti Íslandsmet í 400 m hlaupi innanhúss og 200 m hlaupi utanhúss í flokki 16-17 ára pilta á árinu.

 

Ásgerður Jana Ágústsdóttir er 15 ára efnileg sjöþrautarkona. Hún bætti sig í öllum greinum sl. sumar og er í þriðja sæti á afrekaskrá sumarsins í hástökki með 1,70m. Hún er í landsliðshóp FRÍ.

 

Bjarki Gíslason hefur verið fastamaður í landsliðinu undanfarin ár í sinni grein sem er stangarstökk (4,90 m). Bjarki var meiddur í sumar en er kominn á fullt og stefnir hátt.

 

Bjartmar Örnuson átti einnig við meiðsli að stríða á árinu sem hélt honum frá keppni en hefur verið í landsliðshópnum í 800 m hlaupi.

 

Meistaraflokkur UFA er ekki stór en öflugur sem sést á þessum glæsilega árangri.  En til að ná árangri þarf þrautsegju, dugnað, vilja, jákvætt umhverfi og hugarfar, góða þjálfara og góða aðstöðu. Þetta hefur tekist bærilega hjá UFA og þar er metnaður fyrir að reka afreksstefnu og fara alla leið.

 

Texti: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir.

 

 

 

 

 

Nýjast