Einstakt hljóðfæri tekið úr umbúðunum

Hljóðfærið verður vígt í H'oladómkirkju
Hljóðfærið verður vígt í H'oladómkirkju

Fámennum hópi áhugafólks hefur nú tekist að afla fjár til kaupa á einstöku hljóðfæri sem tekið verður formlega úr umbúðunum kl. 11 á morgun, miðvikudag, í Akureyrarkirkju. Þetta er lítið hljóðfæri af sembalfjölskyldunni, svokallaður virginall, sem á sér engan sinn líka á Íslandi. Hljóðfærið er smíðað algjörlega eftir þörfum endurreisnar- og snemmbarokktónlistar.

Barokksmiðja Hólastiftis ses. heitir menningarfélagið sem stendur að þessum hljóðfærakaupum. Stjórn þess er skipuð tónlistarfólki og áhugafólki um barokk. Barokksmiðjan var stofnuð til að auka áhuga Íslendinga á barokktónlist og öðrum listum og menningu barokktímans. Hápunktur hvers árs í starfi Barokksmiðjunnar er Barokkhátíðin á Hólum sem haldin er síðustu helgina í júní ár hvert. Hátíðin í ár hefst á fimmtudag og þar kennir ýmissa grasa. Þátttakendur eru nú frá Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð, Hvíta-Rússlandi, Úkraínu og Hollandi þannig að hátíðin er alþjóðleg.

Hljóðfærið nýja verður vígt í Hóladómkirkju á fimmtudagskvöld kl. 20. Þá halda þau Lars og Maria Sjöstedt tónleika. Lars aðstoðaði við val á hljóðfærinu og útfærslu þess. Hann er semballeikari en Maria fiðluleikari. Hljóðfærið smíðaði Tony Chinnery á Ítalíu, einn færasti sembalsmiður Evrópu. Það kostar um tvær og hálfa milljón króna. Þetta er stór áfangi í sögu Barokksmiðjunnar og menningarlegt afrek, ekki síst á þessum tímum þegar erfiðlega gengur að fá styrki til menningarmála.

Nýjast