Eining-Iðja:Meðallaun 328 þúsund krónur á mánuði

Björn Snæbjörnsson/mynd karl Eskil
Björn Snæbjörnsson/mynd karl Eskil

Capacent Gallup gerði launa- og þjónustukönnun fyrir Einingu-Iðju í nóvember og bárust svör frá liðlega 900 manns. Samkvæmt könnuninni voru meðallaunin 327.979 krónur í mánuðinum. Hæst voru þau í óskilgreindum flokki, 447.000 krónur og þar á eftir hjá bílstjórum/lager-/tækjastarfsmönnum, 362.000 krónur. Lægstu meðallaunin voru meðal skólaliða, leiðbeinenda og fólks sem starfar við ræstingar. Þar voru launin 281.000 krónur að jafnaði í síðasta mánuði.

Launin lægst á Akureyri

Meðal heildarlaun voru lægri á Akureyri en á öðrum svæðum í firðinum. Á Akureyri voru þau 321.322 krónur í nóvember en á öðrum stöðum voru launin að jafnaði 351.000 krónur. Ekki reyndist vera marktækur munur á launum karla og kvenna. 26 % sögðust vera sátt við launin en 49 % ósátt.

Athygli vekur að nærri 40 % segjast ekki hafa fengið taxtahækkun, prósentuhækkun eða launahækkun í kjölfar síðustu samninga. Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju segir að þessi svör komi verulega á óvart og málið verði kannað sérstaklega.

Aukið álag

Nærri 60 % svarenda segja að álag í vinnunni hafi aukist á síðustu mánuðum. Hátt í 70 % þeirra sem eru í umönnunarstörfum segja að álagið hafi aukist, hlutfallið er sömuleiðis svipað meðal bílstjóra.

Áhyggjur af fjármálum

42 % hafa miklar áhyggjur af fjárhagsstöðu sinni, aðallega vegna lágra launa eða hækkandi verðlags. Um helmingur hefur áhuga á að afla sér aukinnar menntunar á framhaldsskólastigi, ef sérstök námskeið yrðu sniðin að fólki á vinnumarkaði.

Mikil ánægja með Einingu-Iðju

Svarendur voru spurðir um þjónustu Einingar-Iðju. Mikill meirihluti, rúmlega 95%, er sáttur við þjónustuna og nærri 60 % hafa nýtt sér þjónustu félagsins undanfarna 12 mánuði.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast