Eining-Iðja undirbýr kröfugerð

Alþýðuhúsið á Akureyri
Alþýðuhúsið á Akureyri

Samninganefnd Einingar-Iðju samþykkti í gær að veita Starfsgreinasambandi Íslands umboð vegna fyrirhugaðra kjarasamningsviðræðna við Samtök atvinnulífsins, Samband íslenska sveitarfélaga og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins. Nefndin samþykkti einnig að veita Starfsgreinasambandinu umboð til að gera viðræðuáætlun við SA, Samband íslenska sveitarfélaga, fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins, Bændasamtök Íslands og Landsamband smábátaútgerða. Í umboðinu kemur jafnframt fram að tryggt skuli í viðræðuáætluninni aðkomu félagsins að sérkjarasamningum sínum.

Fundurinn í gær var fjórði fundur nefndarinnar í ár. Fyrsti fundurinn fór fram í byrjun mars, en á honum var m.a. rætt hvernig undirbúningur félagsins ætti að vera fyrir næstu samningaviðræður og samþykkt að gera ætti skoðanakönnun á vinnustöðum eins og gert var fyrir síðustu samninga. Á fundinum var einnig samþykkt fundaplan nefndarinnar fyrir næstu mánuði.

1.330 svör
Dagana 6. til 10. maí fór fram skoðanakönnun á vinnustöðum á meðal félagsmanna og bárust 1.330 svör.  Sumarið verður nýtt til að vinna úr könnuninni og svo verða niðurstöðurnar kynntar í samninganefndinni í lok ágúst. Á þeim fundi verður einnig byrjað að vinna við kröfugerð félagsins.

Allir félagsmenn geta haft áhrif á kröfugerðina
Dagana 13. til 15. maí sl.hélt félagið fund með trúnaðarmönnum þar sem farið var yfir yfir gildandi kjarasamninga og þeir samlesnir. Tilefni þessara funda var að undirbúa komandi kröfugerð félagsins fyrir samningana í haust. Kristján Bragason, fyrrverandi framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins, var fenginn til að hafa yfirumsjón með þessum fundum. Á fundinum í gær var farið yfir samantekt á niðurstöðum þessara funda. Markmiðið með þeim var ð gefa trúnaðarmönnum tækifæri á að koma að stefnumótun félagsins í komandi samningum, safna ábendingum og athugasemdum varðandi kjarasamninga, fá fram helstu áhersluþætti trúnaðarmanna í komandi samningum og safna upplýsingar um sérmál ákveðinna starfshópa.

Fullmótuð kröfugerð félagsins þarf að hafa borist Starfsgreinasambandi Íslands fyrir 12. september nk.

Nýjast