Eining-Iðja felldi samninginn

Björn Snæbjörnsson/mynd karl eskil
Björn Snæbjörnsson/mynd karl eskil

Félagsmenn Einingar-Iðju sem starfa á almenna vinnumarkaðinum felldu nýjan samning við Samtök atvinnulífsins sem skrifað var undir þann 21. desember sl. Póstatkvæðagreiðsla á meðal félagsmanna lauk kl. 17 í gær.

Á kjörskrá voru 3.419, atkvæði greiddu 841 eða 24,6%. Nei sögðu 452 eða 53,75% og var samningurinn því felldur. Já sögðu 385 eða 45,78%. Auðir seðlar voru 4 eða 0,47%.

Formaður Einingar-Iðju er Björn Snæbjörnsson, en hann er jafnframt formaður Starfsgreinasambands Íslands.

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, samþykkti hins vegar samninginn.

Nýjast