Hluthafafundur Eikar fasteignafélags samþykkti að kaupa verslunarmiðstöðina Glerártorg á Akureyri af SMI ehf. Glerártorg er 17.700 fermetrar að stærð og er fasteignamatið um 2,6 milljarðar króna. Hluthafafundurinn samþykkti að kaupa allt hlutafé Landfesta og einnig fimm stórar eignir SMI. Með kaupunum verður Eik næst stærsta fasteignafélag landsins, með um 271 þúsund leigufermetra og er virði eignanna um 60 milljarðar króna.
karleskil@vikudagur.is