Stjórn Íþróttafélagsins Þórs hefur ákveðið að ráða Eið Arnar Pálmason í starf framkvæmdastjóra félagsins. Alls sóttu fjórtán um en Eiður mun taka við af Sigfúsi Ólafi Helgasyni sem lét af störfum í sumar. Eiður Arnar er 36 ára gamall og er með próf í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri. Síðastliðinn tíu ár hefur Eiður starfað hjá Ferrozink, fyrst sem sölumaður og við markaðsmál frá árinu 2010 sem sölustjóri, eftir því sem fram kemur á heimasíðu Þórs.