Löng hefð er fyrir eggjatínslu í björgunum í Grímsey og var hún mikilvæg búbót á árum áður. Eggjatínsla er ennþá í hávegum höfð hjá Grímseyingum og þykja eggin mikið lostæti. Farið var í fyrsta bjargsigið í gær, sunnudaginn 11. maí, og var afraksturinn mikill. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar
Sigurður Bjarnason seig í efra Sandvíkurbjarg og bjóst ekki við mörgum eggjum en fleiri hundruð egg komu upp eftir sex sig. Með honum á bjargi voru hjónin Magnús Bjarnason og Anna María Sigvaldardóttir sem tók meðfylgjandi mynd.