Sigurvin Haraldsson var lagður í einelti alla sína grunnskólagöngu. Hann íhugaði sjálfsvíg um tíma og segist enn vera að glíma við afleiðingar eineltis. Sigurvin, eða Simmi eins og hann er jafnan kallaður, ólst upp á Akranesi. Hann hefur verið meira en minna fyrir norðan frá árinu 2003 og flutti alfarið til Akureyrar fyrir fjórum árum. Hann segir mikilvægt að halda umræðunni um einelti á lofti og vill að samfélagið taki harðar á eineltismálum.
Þá segist Simmi hafa verið rekinn úr vinnu í grunnskóla á Akureyri fyrir að stöðva einelti.
Ég var aðeins öðruvísi en flestir aðrir krakkar og hafði fjörugt ímyndunarafl. Fyrir vikið var mér strítt, bæði af eldri og yngri krökkum. Eineltið byrjaði um sjö ára aldur og stóð yfir þangað til að ég var kominn vel yfir tvítugt. Í sannleika lagði heilt bæjarfélag mig í einelti. Fólk dreifði allskonar sögum um mig og margar hverjar voru ansi ógeðfelldar.
Þetta er aðeins brot úr ítarlegu viðtali við Simma sem má nálgast í heild sinni í prentútgáfu Vikudags