Ég geri allt fyrir börnin mín

Hulda Jóhannsdóttir, þriggja barna móðir á Akureyri, hefur undanfarnar vikur farið fyrir hópi foreldra í bænum sem berjast fyrir bættri þjónustu barna og unglinga með ADHD og skylda sjúkdóma. Hulda stofnaði m.a. hóp á fésbókinni undir nafninu, „Við krefjumst þess að fá bætta þjónustu fyrir börnin okkar“, en þar eru meðlimir nú um 1000. Eins og Vikudagur hefur fjallað um ríkir óvissa í barna og geðlækningum á Akureyri þar sem eini geðlæknirinn á þessu sviði hætti störfum fyrir um tveimur mánuðum. Blaðamaður settist niður með Huldu.

– Ertu baráttukona í eðli þínu Hulda?

„Já, ég er það en hef reyndar komið sjálfri mér á óvart síðustu daga. Ég vissi ekki að ég hefði þetta í mér, en þegar ég fæ nóg að þá geri ég eitthvað í málunum. Það þurfti kjark til að stíga fram og ég var margar vikur að manna mig upp í að opna fyrir þessa umræðu."

Má lítið út af bera

„Strákurinn minn elsti, sem er 15 ára, er búinn að vera á lyfjum síðan hann byrjaði í grunnskóla. Hann er greindur með ADHD og mótþróaþrjóskuröskun. Þetta er dásamlegur drengur og algjör gimsteinn. Ef hann fær sína þjónustu að þá lifum við venjulega fjölskyldulífi. En það má lítið út af bera og þess vegna ákvað ég að stíga fram og vekja athygli á þessu vandamáli."

Þetta er aðeins brot úr viðtali við Huldu sem má nálgast í heild sinni í prentútgáfu Vikudags.

throstur@vikudagur.is

 

Nýjast