Örn Stefánsson Olsen bjargaði manni úr brennandi íbúð að Gránufélagsgötu 28 á Akureyri í gærkvöldi. Hann gerði þrjár tilraunir áður en honum tókst að draga manninn, sem var meðvitundarlítill, út úr íbúðinni. Ég ætlaði ekki að láta hann deyja, segir Örn í samtali við mbl.is.