Eftirsóknarvert starf

Nærri sextíu umsóknir bárust um stöðu kynningar- og upplýsingafulltrúa Stapa lífeyrissjóðs á Akureyri, en um nýja stöðu er að ræða. Þegar er hafin vinna við yfirferð umsókna en stefnt er að því að ganga frá ráðningu á nýjum starfsmanni í fyrstu viku febrúar.  „ Í starfinu felast tækifæri til að móta þau verkefni sem starfið felur í sér. Viðkomandi þarf að hafa mikinn áhuga á öflugu upplýsingaflæði og vilja og getu til að skila af sér góðu verki,“ segir í auglýsingu Stapa um starfið.

Stapi lífeyrissjóður er almennur lífeyrissjóður með um 145 milljarða króna í eignum. Starfssvæði sjóðsins nær frá Hrútafirði í vestri að Skeiðarársandi í austri. Sjóðurinn nær þannig til allra byggðakjarna á Norður- og Austurlandi.

Nýjast