Dysnes markaðssett

Eimskip, Mannvit, Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og fleiri undirbúa stofnun félags, sem ætlað er að markaðsetja hafnarsvæðið á Dysnesi við Eyjafjörð í tengslum við námu og olíuvinnslu á norðurslóðum.

Verið að er að skipuleggja svæðið, sem er nærri 60 hektarar að stærð, eigendur landsins eru Hafnarsamlag Norðurlands og Hörgársveit.

 Atvinnuþróunarfélagið fer fyrir tveggja ára átaki sem snýst um að gera Eyjafjörð betur sýnilegan fyrir þann fjölda fyrirtækja sem hyggja á stórfelldar framkvæmdir á norðurslóðum. Erlend fyrirtæki hafa þegar líst yfir áhuga á að fá aðstöðu á Dysnesi, enda benda aðstæður til þess að þar sé hentugt að byggja upp öflugt iðnaðar-, athafnaog hafnarsvæði.

 karleskil@vikudagur.is

Nýjast