Veltan á fasteignamarkaðnum á Norðurlandi eystra var í fyrra samtals 12,8 milljarðar króna, samkvæmt skráðum kaupsamningum. Alls var þinglýst 625 samningum, þar af 449 á Akureyri. Veltan á Akureyri á síðasta ári var 10,6 milljarðar króna, veltan vegna viðskipta með íbúðir í fjölbýli var 4,9 milljarðar króna. Þegar verð fasteigna í einstökum hverfum á Akureyri er skoðað, kemur í ljós að dýrustu fasteignirnar eru í Naustahverfi.
Meðalkaupverð Meðalkaupverð
pr. ferm. 2011 pr. ferm. 2012
Lunda- og Gerðahverfi 163.166 190.031
Holta- og Hlíðarhverfi 161.206 176.231
Brekka og Innbær 140.153 163.353
Giljahverfi 201.346 217.497
Oddeyri 147.650 153.939
Síðuhverfi 172.224 170.038
Naustahverfi 223.713 242.092