Einstakt gjald fyrir fullorðinn í sund á Akureyri hækkar um 17 prósent um áramótin, gjaldið hækkar úr 470 krónum í 550 krónur.
Aldraðir hafa til þessa fengið frítt í sund á Akureyri en um áramótin þurfa þeir að greiða 200 krónur.
Fyrir börn á aldrinum 6-17 ára er hækkunun 33 %. Í dag kostar 150 krónur fyrir þennan aldurshóp að fara í sund, en eftir áramót 200 krónur.
Árskortið lækkar um nærri 15 % , kortið kostar á næsta ári 32.500 krónur en verðið er nú 38.000 krónur. Verðið á sex mánaða korti verður óbreytt, 23.500 krónur.
Gjaldskráin fyrir gufubað verður sú sama og leiga á handklæðum og sundfötum helst óbreytt.
karleskil@vikudagur.is