Fyrrum bekkjarsystkini úr Dalvíkurskóla voru dúx og semidúx Menntaskólans á Akureyri , en skólanum var slitið í 145. sinn í 17. júní við hátíðlega athöfn í Íþróttahöllinni. Alls voru 184 stúdentar brautskráðir.
Dúx skólans er Árni Stefán Friðriksson sem brautskráðist af raungreina- og tækniibraut með meðaleinkunnina 9,52. Þórey Steingrímsdóttir var semidúx með meðaleinkunnina 9,35. Bæði fengu þau fjölda verðlauna og viðurkenninga.
Árni Stefán var í Gettu betur liði MA sem komst í undanúrslit í vetur. Hvatningarverðlaun MA fékk liðsfélagi hans úr Gettu betur, Sólveig Erla, en þau verðlaun eru ætluð nemanda sem hefur jákvætt viðhorf til náms, skólans og nemenda og hefur jákvæð áhrif á samfélagið í kringum sig.