Draugaslóð í Innbænum Akureyri

Það verða allskyns verur sem munu láta sjá sig á Draugaslóðinni. Mynd: Hörður Geirsson
Það verða allskyns verur sem munu láta sjá sig á Draugaslóðinni. Mynd: Hörður Geirsson

Draugar, dularfull hljóð, drungalegir tónar og dulúðleg stemning, er meðal annars það sem gestir og gangandi munu upplifa í Innbænum næstkomandi föstudagskvöld, þann 31. ágúst kl. 22:30-23:30 í Draugaslóð Minjasafnsins á Akureyri, Leikfélags Hörgdæla og Leikfélags Akureyrar. Innbærinn, elsti hluti Akureyrabæjar, skapar leikmyndina fyrir þetta kyngimagnaða kvöld. Örlitlar ljóstýrur lýsa upp garða, hús og stræti um leið og þær skapa dulúð og drungalegheit.

Erfitt verður að gera greinarmun á verum þessa heims og annars sem líða munu um götur og garða í eilífri leit að sálum sínum og annarra. Draugaslóðin er að þessu sinni mönnuð af starfsmönnum safnsins, félögum úr Leikfélagi Hörgdæla og leikklúbbnum Sögu, leikurum frá Leikfélagi Akureyrar, ásamt áhugasömum velunnurum Minjasafnsins á Akureyri.

Vert er að benda á að þetta kyngimagnaða kvöld í Innbænum, eins og hann leggur sig, getur skotið skelk í bringu ungra barna og viðkvæmra sála. Í tilefni 50 ára afmæli Minjasafnsins á Akureyri og 150 ára afmæli Akureyrarbæjar verður enginn aðgangseyrir að safninu laugardag og sunnudag sem að venju er opið frá kl 10-17.

Nýjast