Andrea J. Ólafsdóttir og Daði Ingólfsson kosningastjórar Dögunar voru á Akureyri í vikunni, tilefnið var að ræða við heimafólk um framboðsmál. Við ræddum við marga og næsta skref er að undirbúa stofnun kjördæmisráðs, sem ákveður væntanlega hvernig staðið verður að framboðsmálum. Dögun ætlar sér að bjóða fram í öllum kjördæmum og undirbúningurinn gengur vonum framar. Við leggjum áherslu á að hrinda í framkvæmd mikilvægum hagsmunamálum þjóðarinnar og að verða það breytingaafl sem íslensk stjórnmál skortir svo mjög," segir Daði Ingólfsson.